Ég elska mexíkóskan mat alveg svakalega mikið og gerir eiginmaðurinn ávallt grín að mér þegar við erum hugmyndasnauð korter í kvöldmat og ég fylli körfuna af nachos og grænmeti. Þá veit hann hvað er í vændum. Ég er því svakalega ánægð með að hafa loksins náð að fullkomna vefjurnar mínar með þessum heimagerðu taco pönnukökum. Þessar pönnukökur eru nefnilega algjört æði!
Og svo fáránlega einfaldar. En hafið samt í huga að ég sólundaði mörgum hveitipokanum í tilraunum til að finna hina einu, réttu blöndu þannig að á bak við þennan einfaldleika eru þrotlausar æfingar í eldhúsinu. Pönnukökur með reynslu, sem sagt.
Ég get nánast lofað ykkur því að þið eigið aldrei eftir að kaupa vakúmpakkaðar pönnukökur út í búð aftur. Pönnukökur sem eru jafnvel búnar að liggja í búðarhillunum í einhverjar vikur og eru allt annað en ferskar. Héðan í frá eigið þið alltaf eftir að gera ykkar eigin pönnukökur og ekki bara spara krónur heldur græða partí í munninum ykkar.
Þessar kökur eru langbestar þegar þær eru nýbakaðar og held ég hita á þeim með því að geyma þær á disk á eldavélinni á meðan ég baka. Þetta tekur nefnilega smá tíma og við viljum alls ekki að kökurnar kólni. Og þessi uppskrift sem ég býð uppá dugar í kökur fyrir alla fjölskylduna mína, sem telur 3-4 fullorðna og 2-3 börn. Ég bý yfirleitt til frekar litlar kökur því mér finnst þær talsvert meðfærilegri en stórar. En þið náttúrulega ráðið þessu alveg. Þær eru alveg jafngóðar á bragðið, hvort sem þær eru stórar eða litlar.
Annað var það ekki. Nema jú, eitt. Mér finnst þessar bestar bara saltaðar en þið getið auðvitað leikið ykkur með krydd. Byrjið samt á einföldu útgáfunni og týnið ykkur svo í bragðlaukaævintýri. Njótið!
|
|
- 3bollar Kornax-hveiti
- 1bolli volgt vatn
- 1 tsk sjávarsalt(plús meira við bakstur)
- 4 1/2msk grænmetisolía(líka hægt að nota ólífuolíu)
- Blandið öllum hráefnum vel saman í skál og hnoðið deigið vel. Leyfið því síðan að hvíla í um 10 mínútur.
- Setjið nokkra dropa af olíu á pönnu og hitið yfir háum hita.
- Takið smá klípu af deiginu og fletjið út í hringlaga köku. Deigið er frekar teygjanlegt þannig að ég leik mér líka með það í höndunum og teygi það aðeins til. Við viljum að kökurnar séu frekar þunnar.
- Þegar pannan er orðin mjög heit, er kökunni skellt á og smá sjávarsalti stráð yfir hana. Kakan er síðan bökuð í um mínútu. Síðan er henni snúið við og hún bökuð í um mínútu í viðbót. Mér finnst best að nota töng til að snúa kökunum við. Svona er þetta gert koll af kolli þar til deigið er búið.
- Munið bara að pannan þarf að vera vel heit og kökurnar þurfa ekki langan baksturstíma þannig að það þarf að fylgjast mjög vel með þeim.