Þegar ég var lítil var ég kölluð Kanos kanill. Ekki spyrja mig af hverju. En það gæti verið þess vegna sem ég hef leitast við að finna hinn fullkomna kanilsnúð í fjöldamörg ár og fyrir nokkrum misserum fann ég hann!
Mér er alveg sama hvað þið teljið ykkur eiga góðar kanilsnúðauppskriftir – það jafnast engin á við þessa! Svo er bara matsatriði hvort glassúr er settur á eða ekki – það fer bara eftir því hvernig skapi ég er í.
Bestu kanilsnúðar í heimi
|
|
Hráefni
- 4msk volgt vatn
- 6msk volgt smjör
- 1pakki Royal-vanillubúðingur
- 2 1/2dl rjómi
- 2 egg
- 1 msk sykur
- 1tsk salt
- 500g hveiti
- 50g ferskt ger
Fylling
- 200g púðursykur
- 4tsk kanill
- 100g valhnetur(má sleppa)
- 3-6msk brætt smjör
Leiðbeiningar
- Hitið rjómann. Setjið öll hráefnin sem eiga heima í snúðunum í skál og hellið rjómanum yfir. Hnoðið vel saman.
- Stráið hveiti yfir deigið, breiðið yfir það klút og látið það hefast þar til það hefur tvöfaldast.
- Setjið deigið á borðflöt sem búið er að strá hveiti á og fletjið út eins þunnt og þið mögulega getið.
- Smyrjið deigið með smjöri og stráið púðursykri, kanil og valhnetum yfir.
- Rúllið deiginu upp og skerið í bita.
- Setjið klút yfir snúðana og leyfið þeim að hefast aftur.
- Hitið ofninn í 200°C og bakið snúðana í um 15 mínútur.