Jæja, þá er komið að fyrstu uppskriftinni á milli jóla og nýárs. Ég vona svo innilega að þið hafið fundið eitthvað sem þið hafið getað bakað á aðventunni og að það hafi glatt ykkur og ykkar nánustu.
Ég geri ráð fyrir að flestir séu búnir að baka jólasmákökurnar en ég mæli samt með því að þið hendið í eina uppskrift í viðbót fyrir jólin því þessar samlokukökur eru osom!
Uppskriftin er ótrúlega einföld og fékk ég krakkana mína til að setja kremið á og þeim fannst það rosalega skemmtilegt. Takið ykkur smá hvíld frá jólastressinu og eyðið tveimur klukkutímum með fjölskyldunni í eldhúsinu. Kveikið á kertum, spilið ykkar eftirlætis jólalög og bara njótið stundarinnar – það jafnast ekkert á við það!
Samlokukökur fullar af piparkökubragði og rjómaosti
|
|
Hráefni
Kökurnar
- 1 1/2bolli Kornax-hveiti
- 1tsk engifer
- 1tsk kanill
- 1 tsk lyftiduft
- 1/2tsk matarsódi
- 115g mjúkt smjör
- 1/2bolli púðursykur
- 1 Nesbú-egg
- 1/2bolli síróp
- 1/2bolli sýrður rjómi
Kremið
- 250g mjúkur rjómaostur
- 60g mjúkt smjör
- 1/4tsk vanilludropar
- 1bolli flórsykur
Leiðbeiningar
Kökurnar
- Hitið ofninn í 180°C og klæðið ofnplötur með bökunarpappír.
- Blandið hveiti, engiferi, kanil, lyftidufti og matarsóda vel saman í skál.
- Hrærið smjör og púðursykur saman í annarri skál. Blandið egginu saman við og því næst sírópi og sýrðum rjóma.
- Blandið þurrefnunum varlega saman við smjörblönduna.
- Búið til litlar kúlur úr deiginu og raðið þeim með góðu millibili á ofnplötur. Fletjið kúlurnar aðeins út með lófanum.
- Bakið í 10 til 12 mínútur og leyfið kökunum alveg að kólna.
Kremið
- Blandið öllum hráefnum vel saman og smyrjið kreminu á helminginn af kökunum. Setjið síðan kökurnar saman og njótið. Þetta verða um 20 kökur.