Í dag er 19. júní – sjálfur kvenréttindadagurinn. Því fannst mér vel við hæfi að skella í bleikar bollakökur á þessum degi og enn meira við hæfi að hafa það fallega bleik brjóst svona í ljósi þess að vitundarvakningin Free the Nipple, eða frelsun geirvörtunnar, stendur sem hæst.

Kannski eignast ég barn í dag, kannski ekki. Litla stúlku sem hefði átt að koma í heiminn fyrir viku síðan en lætur bíða eftir sér og gerir mömmu sína brjálaða. Ég vil ekki að hún alist upp í heimi þar sem konum finnst óþægilegt að gefa börnunum sínum brjóst, og jafnvel mega það ekki á almannafæri, og ógeðslegt að bregða sér úr brjóstahaldaranum á góðum sólardegi og leyfa sólargeislunum að kyssa sig. En fyrst og fremst vil ég ekki að hún alist upp í heimi þar sem hefndarklám er talið lítilfjörlegt og fær að viðgangast.

Þessi uppskrift er ofsalega einföld og kökurnar mjög sléttar og felldar – engar krúsídúllur eða óvæntur glaðningur í miðjunni. En stundum þarf bara einfaldleikann til að berjast fyrir því sem maður hefur trú á og ekki missa sjónar á því sem áunnist hefur. Til hamingju með daginn allir Íslendingar!


Brjóstabollakökur
Hráefni
Kökur
Leiðbeiningar
Kökur
  1. Hitið ofninn í 175°. Blandið þurrefnum saman við smjörið þar til blandan er orðin að mulningi.
  2. Blandið eggjum, sýrðum rjóma, olíu og vanilludropum vel saman í annarri skál.
  3. Blandið eggjablöndunni við þurrefnablönduna og hrærið vel.
  4. Síðan er mjólkinni bætt varlega saman við og allt blandað saman. Deiginu deilt í möffinsform og kökurnar bakaðar í 15 til 20 mínútur. Kælið kökurnar alveg áður en kremið fer á.
Krem
  1. Blandið smjöri og flórsykri vel saman.
  2. Bætið dropum og rjóma saman við og því næst matarlitnum. Hér er hægt að bæta meira rjóma við ef ykkur finnst kremið of þykkt.
  3. Skellið kreminu á kökurnar og veljið ykkur nammigeirvörtur til að ljúka við meistaraverkið.

Umsagnir

Umsagnir