Besta vinkona mín þolir ekki appelsínur. Og hún á mjög erfitt með mjög dökkt súkkulaði. Því dekkra því verra í hennar tilviki. Þessu geri ég, og aðrir, óspart grín að og því er þessi uppskrift fyrir hana og lokar hún einnig fyrsta mánuðinum á Blaka þar sem þemað var gult.

Já, ég veit að ég er að seilast aðeins út í órans núna en þessi brúnka er barasta svo unaðsleg. Unaðsleg í órans. P.s. Séð og Heyrt var að hringja og vill fá stuðluðu fyrirsögnina sína aftur.


Brúnkur með nammiappelsínum
Hráefni
Nammiappelsínur
Brúnkan
Leiðbeiningar
Nammiappelsínur
  1. Skerið appelsínuna niður í þunnar sneiðar. Hitið sykur og vatn á pönnu yfir meðalháum hita þar til sykurinn hefur leysts upp.
  2. Setjið sneiðarnar í einfaldri röð á pönnuna og leyfið að malla í 20 mínútur. Snúið appelsínunum einu sinni á þessum tíma.
  3. Setjið appelsínusneiðarnar á bökunarpappír og leyfið þeim að kólna. Hellið sírópinu í bolla og geymið.
Brúnkan
  1. Hitið ofninn í 190°C. Bræðið dökkt súkkulaði, mjólkursúkkulaði og smjör saman.
  2. Blandið salti, púðursykri og appelsínusírópinu vel saman við súkkulaðiblönduna.
  3. Hrærið vanilludropum saman við og því næst eggjunum, eitt í einu.
  4. Blandið því næst hveiti og kakó við blönduna. Rífið börkinn af einni appelsínu og skellið út í deigið.
  5. Setjið í ferhyrningslaga form og bakið í 25 til 30 mínútur. Munið að brúnkur eiga að vera aðeins óbakaðar þannig að þessi er tilbúin þegar prjóni er stungið í miðjuna og það kemur smá kaka með.

Umsagnir

Umsagnir