Ég hef lengi, lengi, lengi verið mikill aðdáandi White Russian, sérstaklega út af myndinni The Big Lebowski sem ég dýrka út af lífinu.

Ég á svo ótalmargar góðar minningar sem tengdar eru þessum kokteil að ég bara varð að breyta honum í bollakökur. Útkoman er algjörlega tryllt. Uppskrifitn er einföld en bragðið er ólýsanlega gott. Þið bara verðið að prófa að baka þetta sjálf!


Vígalegar White Russian-bollakökur
Hráefni
Múffur
Krem
Fylling
Leiðbeiningar
Múffur
  1. Hitið ofninn í 180°C og takið til 8-10 möffinsform.
  2. Stífþeytið rjómann og blandið vanilludropum og Bailey's saman við.
  3. Þeytið egg í lítilli skál og bætið því saman við rjómablönduna.
  4. Blandið sykrinum varlega saman við og hrærið síðan þurrefnum saman við.
  5. Deilið á milli möffinsforma og bakið í 18-20 mínútur. Leyfið kökunum að kólna og skerið síðan litlar holur í miðjuna fyrir fyllinguna. Passið að holurnar nái ekki alveg í gegnum kökurnar.
Fylling
  1. Setjið súkkulaði og rjóma í skál og hitið í örbylgjuofni í 30 sekúndur. Hrærið í blöndunni og endurtakið þar til súkkulaðið er bráðnað.
  2. Blandið vodka vel saman við og deilið fyllingunni í holurnar í múffunum.
Krem
  1. Þeytið smjörið í 4-5 mínútur og blandið síðan restinni af hráefnunum saman við.
  2. Skreytið kökurnar með kreminu og drissið jafnvel smá rifnu súkkulaði yfir herlegheitin.

Umsagnir

Umsagnir