Það sem mér finnst langskemmtilegast við bakstur er að það er allt hægt – eins og til dæmis að búa til svona súper sætar páskakökur sem minna helst á gulrótarbeð. Páskakanínan þarf jú eitthvað að borða, ekki satt?

Þessar kökur slógu í gegn hjá heimilisfólkinu mínu enda hefur fólkið mitt gaman að svona ævintýralegum tilraunum og að láta koma sér á óvart. Svo finnst mér líka svo æðislegt að föndra eitthvað svona sniðugt með handþeytarann að vopni.

Þessar kökur eru einstaklega einfaldar en taka smá tíma þar sem það þarf að súkkulaðihúða jarðarberin og leyfa súkkulaðinu að storkna og svona. En ef þið ætlið að bjóða í mat um páskana, mæli ég með þessum eftirrétt. Þið getið bókað að gestirnir ykkar verða steinhissa!

Ef þið nennið ekki að baka bollaköku fyrir hvern og einn og nostra við þær þá er líka til einfaldari lausn. Þið getið einfaldlega búið til eina, stóra köku, búið til nokkrar holur í kökuna og troðið „gulrótunum“ ofan í. Þá lítur kakan út eins og moldarbeð, stútfullt af gulrótum. Og á einhvern undarlegan hátt finnst mér það rosalega girnilegt. Er ég skrýtin?


Súper dúllulegar páskakökur
Hráefni
"Gulrætur"
Bollakökur
Leiðbeiningar
"Gulrætur"
  1. Bræðið súkkulaðið í örbylgjuofni með 30 sekúndna millibili þar til það er bráðið. Hrærið vel í blöndunni á milli lota í ofninum.
  2. Dýfið jarðarberjunum í súkkulaðið og raðið þeim á smjörpappír. Leyfið súkkulaðinu að storkna.
Bollakökur
  1. Hitið ofninn í 180°C og takið til 12 bollakökuform.
  2. Blandið þurrefnum vel saman í skál. Blandið blautefnum, nema vatni, vel saman í annarri skál.
  3. Blandið blautefnunum vel saman við þurrefnin. Blandið síðan vatninu varlega saman við þar til allt er vel blandað saman. Deigið verður í þynnri kantinum.
  4. Deilið deiginu á milli formanna og bakið í 15-18 mínútur. Leyfið kökunum að kólna áður en þær eru skreyttar.
Krem
  1. Þeytið krem í 4-5 mínútur. Bætið því næst flórsykri, súkkulaði, kakó og vanilludropum vel saman við og hrærið vel. Ef kremið er of þykkt má bæta smá mjólk út í það.
  2. Skerið út holu í miðjunni á hverri köku. Smyrjið kreminu í kringum holuna og myljið Oreo-kex ofan á kremið. Stingið síðan "gulrótunum" ofan í holuna. Þetta er ekki flókið!

Umsagnir

Umsagnir