Nei þetta er sko ekki grín! Ég bakaði í alvöru kleinuhringjaköku!

Hugmyndin kviknaði þegar haft var samband við mig frá kökublaði Vikunnar og ég beðin um að deila uppskrift. Þá fór keppnismanneskjan í mér á fullt og ætlaði ég sko að „vinna“ kökublaðið. Eftir miklar vangaveltur ákvað ég að búa til kleinuhringjaköku þar sem mikið kleinuhringjaæði er búið að grípa um sig á Íslandi.

Þessi kaka er pínu maus en ef ykkur langar að gera svipað en meikið ekki vesenið þá getið þið keypt allt tilbúið út í búð og bara sett hana saman.

Hér erum við sem sagt að tala um Snickers-kleinuhringi, súkkulaðibúðing, smjörkrem með súkkulaði og hnetusmjöri, Snickers-sósu og fullt, fullt af Snickers! Eigum við ekki bara að fá uppskriftina? Hún er tryllt!


Snickers-kleinuhringjakaka
Hráefni
Kleinuhringir
Súkkulaðibúðingur
Smjörkrem
Snickers-sósa
Leiðbeiningar
Kleinuhringir
  1. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið kleinuhringjaform vel en þessi uppskrift passar fyrir akkúrat 9 kleinuhringi.
  2. Blandið hveiti, kakói, sykri, lyftidufti og salti vel saman í skál.
  3. Hrærið því næst sýrða rjómanum saman við og síðan eggjunum, einu í einu.
  4. Blandið síðan olíunni saman við og hrærið vel.
  5. Hrærið salthnetum og Snickers varlega saman með sleif eða sleikju.
  6. Bakið í 12 til 14 mínútur og leyfið hringjunum aðeins að kólna áður en þið takið þá úr mótunum.
Súkkulaðibúðingur
  1. Best er að gera búðinginn daginn áður en kakan er sett saman.
  2. Setjið mjólk, rjóma, vanilludropa, kakó, sykur, maíssterkju og eggjarauður í pott og hrærið vel saman.
  3. Hitið blönduna yfir meðalhita og hrærið stanslaust í blöndunni þar til hún byrjar að þykkna.
  4. Þegar hún er orðin vel þykk hafið pottinn þá á hellunni í um mínútu í viðbót.
  5. Takið af hellunni og hrærið smjörinu og hnetusmjörinu saman við.
  6. Hellið blöndunni í gegnum fínt gatasigti til að sigta út ef eggin hafa eldast. Setjið í skál, setjið plastfilmu yfir og setjið inn í ísskáp, helst yfir nótt en allavega í 2-3 klukkutíma.
Smjörkrem
  1. Hrærið smjöri og flórsykri vel saman. Bætið því næst restinni af hráefnunum saman við.
Snickers-sósa
  1. Hitið rjómann í örbylgjuofni eða potti.
  2. Þegar rjóminn er farinn að sjóða er honum hellt yfir Snickers-ið.
  3. Leyfið blöndunni aðeins að bíða og hrærið síðan saman þar til allt súkkulaði er bráðnað.
Kakan sett saman
  1. Takið fram fallegt fat. Hafið þrjá kleinuhringi heila en skerið hina í helminga. Setjið heila hringinn í miðjuna á disk eða fati og raðið fjórum helmingum á hverja hlið.
  2. Smyrjið búðingnum í öll göt sem þið sjáið og sprautið síðan smjörkreminu yfir herlegheitin.
  3. Saxið niður eitt Snickers og dreifið því yfir smjörkremið.
  4. Þetta er endurtekið fyrir næstu tvö lög nema betra er að hringirnir sem eru hálfir fari ekki beint ofan á hvorn annan svo kakan verði ekki óstöðug.
  5. Svo er Snickers-sósunni hellt yfir dásemdina og hún skreytt með meira Snickers.

Umsagnir

Umsagnir