Loksins, loksins, loksins er Þorláksmessa runnin upp – einn af mínum uppáhaldsdögum á árinu! Þessi dagur er algjörlega heilagur fyrir mér og vil ég vera búin að öllu jólastússi til að geta notið þess að skreyta í rólegheitum og eyða gæðatíma með minni yndislegu fjölskyldu.

En það þýðir samt ekki að ég kíki ekki inn í eldhús og baki eins og eina köku. Alls ekki. En hún þarf þá að vera ofureinföld og fljótleg – eins og þessi kaka.

Ef þið eigið smá tíma aflögu og langar í eitthvað djúsí og dásamlegt svona korter í jól þá mæli ég með þessari dásemd. Uppskriftin er svo einföld en samt hittir þessi algjörlega í mark. Hver vissi að hvítt súkkulaði og piparkökur pössuðu svona vel saman? Skotheld blanda!


Piparkökukaka með hvít súkkulaði búðingi
Hráefni
Kakan
Búðingurinn
Leiðbeiningar
Kakan
  1. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið 20 sentímetra form.
  2. Blandið smjöri og sykri vel saman og bætið því næst eggjunum við.
  3. Bætið síðan sírópi og vatni varlega saman við.
  4. Blandið restinni af hráefnunum saman við smjörblönduna og hellið deiginu í formið. Bakið í 28 til 30 mínútur.
Búðingurinn
  1. Setjið eggjarauður, sykur, maizena og mjólk í pott og hitið yfir meðalhita. Hrærið þar til blandan er farin að þykkna, eða í 3 til 4 mínútur.
  2. Takið af hitanum og hrærið smjöri, vanilludropum og súkkulaði saman við.
  3. Búið til göt á kökuna ykkar með enda á viðarsleif - því stærri göt því meira af búðingnum fer ofan í kökuna. Passið að gera götin ekki alla leið á botninn.
  4. Hellið volgum búðingnum yfir kökuna og berið fram - jafnvel með þeyttum rjóma.

Umsagnir

Umsagnir