Þessi kaka vakti mikla lukku í Bökunarmaraþoni Blaka og ég náði varla að koma henni á borðið áður en hún var kláruð upp til agna!

Það eru margir búnir að spyrja mig út í þessa uppskrift en í hana nota ég Butterscotch-bita frá Hershey’s. Þeir eru hins vegar ekki alltaf til í búðum sem er algjör skandall en ég er dugleg að láta fylgjendur mína vita þegar ég finn þá. Oftast hef ég fundið þessa bita í Krónunni á Granda.

En ef þeir finnast ekki þá má alveg nota rjómasúkkulaði í þessa uppskrift eða leika sér með einhvers konar karamellusúkkulaði. Það er hins vegar karamellusósan ofan á sem gerir kökuna og því verður hún sjúklega góð sama hvað þið notið!


Óviðjafnanleg karamellukaka
Leiðbeiningar
Kakan
  1. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið 20x20 cm form eða hringlaga form sem er 18-20 cm..
  2. Blandið smjöri, sykri og púðursykri vel saman í skál. Bætið eggi og vanilludropum saman við og hrærið vel.
  3. Bætið hveiti og lyftidufti saman við og blandið öllu vel saman.
  4. Blandið 2/3 af Butterscotch-bitunum saman við með sleif eða sleikju.
  5. Hellið blöndunni í formið og stráið restinni af bitunum ofan á.
  6. Bakið í 30-35 mínútur og leyfið kökunni að kólna í um 20 mínútur áður en þið hellið sósunni ofan á.
Sósan
  1. Bræðið smjörið í potti eða á pönnu yfir meðalhita.
  2. Bætið púðursykri, rjóma og salti saman við og blandið vel saman.
  3. Látið koma upp suðu í blöndunni, lækkið síðan hitann og leyfið þessu að malla í 5 mínútur. Passið að hræra oft í blöndunni.
  4. Takið af hitanum og hrærið vanilludropunum saman við. Sósan þykknar eftir því sem hún kólnar meira.
  5. Hellið sósunni yfir volga kökuna.

Umsagnir

Umsagnir