Ókei, ég veit að ég er alltaf að segja þetta en þessi kaka er ein sú besta sem ég hef bakað! Og ástæðan fyrir því að ég er alltaf að segja þetta er að ég er alltaf að toppa mig í eldhúsinu – þó ég segi sjálf frá.

Nei, ég meina, hvað getur verið betra en silkimjúk ostakaka, trufluð karamellusósa og æðislegt möndlukurl? Bara voðalega fátt.

Til að gera uppskriftina sem auðveldasta keypti ég einhverja gourmet karamellusósu út í búð og sprautaði henni yfir ostakökuna. Það er auðvitað vel hægt að búa til sína eigin karamellusósu eins og ég hef margoft gefið uppskrift að hér á blogginu – til dæmis hér og hér. Njótið elsku dúllurnar mínar!


Ostakaka með karamellusósu og möndlukurli
Hráefni
Botn
Möndlukurl
Leiðbeiningar
Botn
  1. Hitið ofninn í 150°C og takið til þokkalega stórt eldfast mót eða kökuform.
  2. Bræðið smjör og blandið því vel saman við kaffið. Blandið síðan kexinu vel saman við.
  3. Þrýstið blöndunni í botninn á forminu.
Ostakaka
  1. Blandið öllum hráefnum vel saman, nema karamellusósunni (við notum hana síðar) þar til blandan er létt og ljós.
  2. Hellið blöndunni yfir botninn og bakið í 80 mínútur. Slökkvið á ofninum og opnið hann lítillega og leyfið kökunni að kólna inni í ofninum.
  3. Sprautið karamellusósunni yfir ostakökuna þegar hún hefur kólnað.
Möndlukurl
  1. Hitið ofninn í 180°C (þetta er hægt að gera áður en ostakakan er bökuð). Setjið möndlur á bökunarpappírsklædda ofnplötu og ristið í 10 mínútur.
  2. Setjið sykur og vatn í pott og hitið yfir meðalhita.
  3. Bætið möndlunum út í þegar sykurblandan hefur brúnast lítið eitt og leyfið þessu að malla í 5 mínútur til viðbótar.
  4. Skellið möndlunum aftur á bökunarpappírinn og leyfið þeim að kólna. Skreytið ostakökuna síðan með þeim.

Umsagnir

Umsagnir