Ef þið þurfið að baka eina brúnku það sem eftir er af ævinni þá mæli ég með að það verði þessi. Ég veit hvað þið eruð að hugsa: Kartöflustrá og súkkulaði. Fer það saman? Stutta svarið er: Já! Aðeins lengra svar er: Þessi kaka á eftir að breyta lífi ykkar á mjög dramatískan hátt.

Við erum að tala um þykka, djúsí brúnku fyllta af Oreo-kexi. Ofan á er síðan hnausþykk og yndisleg karamellusósa og til að toppa þetta allt saman er hlaðið í glás af kartöflustráum á toppinn. Þessi blanda af söltu og sætu er algjört dúndur!


Oreo-brúnka með karamellusósu og kartöflustráum
Hráefni
Brúnka
Karamellusósa
Ofan á
Leiðbeiningar
Brúnka
  1. Hitið ofninn í 175°C og takið til kassalaga form, tuttugu sentímetra stórt. Þekið botninn með bökunarpappír og látið hann ná aðeins upp á hliðarnar svo auðveldara sé að fjarlægja kökuna úr forminu.
  2. Setjið smjör og súkkulaði í skál sem þolir örbylgjuofn og hitið í 45-55 sekúndur. Hrærið vel saman þar til allt súkkulaði er bráðið.
  3. Bætið sykur, púðursykri og hveiti saman við. Síðan eggjum, einu í einu, og vanilludropum. Síðast fer svo kakóið út í. Passið að hræra ekki of lengi - bara rétt svo þar til allt er búið að blandast saman.
  4. Hellið helmingnum af blöndunni í formið og raðið Oreo-kexkökum ofan á. Hellið síðan hinum helmingnum af deiginu ofan á. Bakið í 25-30 mínútur og leyfið kökunni að kólna.
Karamellusósa
  1. Hitið sykur á pönnu yfir meðalhita og hrærið stanslaust.
  2. Haldið áfram að hræra þar til sykurinn er búinn að bráðna og orðinn ljósbrúnn á litinn.
  3. Bætið þá smjörinu út í smátt og smátt. Þegar smjörið og sykurinn er búinn að blandast saman er rjómanum bætt hægt út í. Blandan mun sjóða. Leyfið henni að sjóða í 1 mínútu og takið hana síðan af hellunni.
  4. Bætið saltinu út í hrærið. Leyfið sósunni að kólna alveg áður en hún er sett á kökuna og stráið síðan kartöflustráum yfir.

Umsagnir

Umsagnir