Mér finnst svo ofboðslega gaman að baka kleinuhringi og þar sem ég er þeirrar skoðunar að allt verði betra með hnetusmjöri þá ákvað ég að skella í ljúffenga kleinuhringi með nýja Oreo-inu með hnetusmjöri.

Og auðvitað er hnetusmjör í glassúrnum – það er bara ekki annað hægt!


Kleinuhringir með Oreo og hnetusmjöri
Leiðbeiningar
Kleinuhringir
  1. Hitið ofninn í 220°C og smyrjið kleinuhringjaform fyrir 6 kleinuhringi.
  2. Blandið þurrefnum vel saman (ekki Oreo-kexi).
  3. Blandið sýrðum rjóma, eggi, vanilludropum og smjöri saman í annarri skál og blandið því svo varlega saman við þurrefnin.
  4. Blandið Oreo-kexi saman við með sleif eða sleikju og deilið deiginu á milli kleinuhringjamóta.
  5. Bakið í 8 til 10 mínútur og leyfið að kólna áður en glassúr er settur á.
Glassúr
  1. Setjið hnetusmjör og mjólk í skál og hitið í örbylgjuofni í 30-45 sekúndur, eða þar til hnetusmjörið er bráðnað. Hrærið vel saman.
  2. Blandið þessu við flórsykurinn og hellið ofan á kleinuhringina. Skreytið með Oreo með hnetusmjöri.

Umsagnir

Umsagnir