Það kom sko engin önnur kaka til greina til að loka þessum lakkrísmánuði en þessi. Ég á ekki til orð til að lýsa því hve sjúkleg hún er.

Í uppskriftinni, sem er ofureinföld svo því sé haldið til haga, er karamellusósa en ég bý alltaf til sömu heimagerðu karamellusósuna og uppskrift að henni má finna hér. Mér finnst hún einfaldlega bara miklu betri en þær tilbúnu sósur sem ég hef prófað en auðvitað er ekkert mál að stytta sér leið og kaupa tilbúna.

Svo saxaði ég lakkrískúlur frá Johan Bülow til að hafa ofan á þessari dásemd en kúlurnar eru sko ekki bara til skrauts. Þær undirstrika allt sem er í gangi í kökunni og lyfta henni upp á hærra plan. Þannig að ekki sleppa kúlunum – þær eru trylltar!


Karamellukaka með lakkrísglassúr
Hráefni
Kaka
Leiðbeiningar
Kaka
  1. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið formkökuform.
  2. Blandið smjöri og sykri vel saman. Bætið eggjunum og vanilludropum saman við og hrærið vel.
  3. Blandið hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti saman við og hrærið.
  4. Að lokum er karamellusósunni og rjómanum blandað vel saman við.
  5. Hellið deiginu í formið og bakið í 45 mínútur.
Glassúr
  1. Blandið sírópi og flórsykri saman og hellið yfir volga kökuna.
  2. Saxið lakkrískúlurnar og drissið þeim yfir glassúrinn.

Umsagnir

Umsagnir