Þegar ég var að viða að mér hugmyndum fyrir áfengisþemað þá rakst ég á nýja týpu af Bailey’s – Bailey’s Chocolat Luxe. Eða kannski er þetta ekkert ný týpa. En hún er ný fyrir mér.

Drykkurinn er alveg eins á bragðið og nafnið gefur til kynna – Bailey’s með súkkulaðibragði. Verður það eitthvað betra en það?!

Þannig að ég kynni Bailey’s-rjómabombu sem er svo æðisleg að allir við borðið þagna þegar þeir byrja að háma hana í sig.


Guðdómleg Bailey's-rjómabomba
Hráefni
Botn
Fylling
Ofan á
Leiðbeiningar
Botn
  1. Blandið öllum hráefnum vel saman og þrýstið í botninn á meðalstóru, eldföstu móti eða kökuformi. Kælið í ísskáp á meðan þið búið til fyllinguna.
Fylling
  1. Setjið mjólk og sykurpúða í meðalstóran pott yfir meðalhita og hrærið þar til sykurpúðar eru bráðnaðir og allt blandað vel saman.
  2. Setjið sykurpúðablönduna inn í ísskáp í um 20 mínútur og blandið síðan Bailey's vel saman við.
  3. Stífþeytið rjómann og hrærið honum saman við sykurpúðablönduna.
  4. Hellið fyllingunni yfir botninn og leyfið þessu að standa í ísskáp í að minnsta kosti fjórar klukkustundir.
Ofan á
  1. Þeytið öll hráefni saman þar til rjóminn er orðinn stífþeyttur og skreytið kökuna rétt áður en hún er borin fram.

Umsagnir

Umsagnir