Þessi uppskrift er í algjöru uppáhaldi hjá mér þegar kemur að bollakökum. Þessar kökur eru svo ofboðslega mjúkar að það er eins og englar hafi bakað þær og stráð töfrum sínum yfir þær.

Mér finnst ofboðslega gott að setja karamellukrem á þessar, smá sjávarsalt og karamellukurl en þið auðvitað getið leikið ykkur með kremið að vild.

Ég hef ekki enn hitt manneskju sem finnst þessar bollakökur vondar. Það segir nú ýmislegt…


Dúnmjúkar kaffibollakökur með karamellukremi
Leiðbeiningar
Bollakökur
  1. Hitið ofninn í 160°C og takið til möffinsform - ca 12-16 stykki.
  2. Byrjið á því að sjóða vatnið - það verður nefnilega að vera sjóðandi heitt þegar því er bætt út í deigið.
  3. Blandið hveiti, sykri, kakói, lyftidufti, matarsóda, salti og instant kaffi vel saman í skál.
  4. Bætið mjólk, olíu, eggi og vanilludropum saman við og hrærið vel saman - hér er mjög gott að nota handþeytara svo kökurnar lyftist vel og verði dúnmjúkar.
  5. Hafið þeytarann á lægsta styrk og hellið sjóðandi heita vatninu varlega saman við þar til deigið er orðið hæfilega þykkt. Það á ekki að vera svo þunnt að það leki út um allt heldur verða örlítið stíft og massívt.
  6. Deilið deiginu í formin og bakið í 14-16 mínútur. Leyfið kökunum að kólna áður en þið setjið kremið á.
Krem
  1. Þeytið smjörið í 1-2 mínútur og bætið síðan flórsykrinum út í og hrærið vel.
  2. Bætið karamellusósu og vanilludropum saman við og hrærið vel saman.
  3. Skreytið kökurnar með kreminu og stráið smá salti yfir þær sem og karamellukurli. Njótið!

Umsagnir

Umsagnir