Hafiði einhvern tímann upplifað það að baka eitthvað, smakka það og trúa ekki ykkar eigin bragðlaukum? Trúa ekki að þið, meðal Jónarnir, hafið getað búið eitthvað svona dásamlegt til? Nú, þannig leið mér þegar ég smakkaði þessa brúnku í fyrsta sinn.

Ég held í alvörunni að þessi kaka gæti komið á friði í heiminum ef hún bara fengi tækifæri til.

Mikilvægt hráefni í þessum unaði er „condensed milk“ sem er sæt mjólk sem minnir meira á karamellusósu en mjólk. Vandamálið með þessa dásemdarmjólk er að hún er alls ekki alltaf til á Íslandi en einu búðirnar sem ég hef séð mjólkina selda í er Kostur og Hagkaup. Það er ekkert mál að baka þessa og sleppa mjólkinni en mjólkin færir þessa sykurbombu upp á hærra plan.


Daim-brúnkur
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofninn í 170°C. Setjið dökkt súkkulaði og smjör í pott og bræðið saman yfir lágum hita.
  2. Þegar það er búið að bráðna og blandast vel saman er potturinn tekinn af hellunni og púðursykri og sykri bætt saman við.
  3. Svo eru eggin hrærð vel saman við. Því næst er hveiti og kakó blandað saman við - en ekki of vel.
  4. Skellið hvíta súkkulaðinu og Daim-inu í blönduna og hrærið vel saman. Setjið blönduna í kassalaga form.
  5. Hitið mjólkina og leyfið henni að sjóða í um 1 til 2 mínútur. Hellið henni yfir og bakið kökuna í 30 til 40 mínútur.
  6. Mér finnst þessi best þegar hún er búin að vera inni í ísskáp yfir nóttu.

Umsagnir

Umsagnir