Ég elska þegar uppskriftir og kruðerí koma mér á óvart. Eitthvað sem ég hélt að yrði afleitt verður bara algjör draumur.

Þessar smákökur eru gott dæmi um það og þess vegna kalla ég þær dúllur. Því þær eru svo sætar og góðar þrátt fyrir að ég hafi vanmetið þær í fyrstu og haldið þær ógeðslega vondar. Ég nefnilega gat ekki ímyndað mér að smákökur með ferskum berjum yrðu góðar. En stundum er bara svo gott að hafa rangt fyrir sér!


Bláberja- og súkkulaðidúllur
Hráefni
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofninn í 170°C og setjið bökunarpappír á ofnskúffur.
  2. Blandið smjöri, sykri og púðursykri vel saman. Blandið egginu við og vanilludropunum og hrærið vel.
  3. Blandið saman hveiti, maizena, salti, matarsóda og lyftidufti í annarri skál.
  4. Hrærið smjörblöndunni saman við þurrefnin þar til allt er næstum því alveg blandað saman.
  5. Blandið haframjölinu saman við með sleif og því næst súkkulaðinu og bláberjunum.
  6. Búið til kúlur úr deiginu og raðið á ofnskúffurnar. Bakið í 16 til 19 mínútur eða þar til brúnirnar á kökunum eru farnar að brúnast.

Umsagnir

Umsagnir