Ég hef áður látið gamminn geysa um fudge, eða mjúkar konfektkaramellur, en ég er algjörlega sjúk í þetta lostæti.

Þess vegna ákvað ég að skella í nokkrar Snickers-karamellur því þetta er svo einfaldur unaður en jafnframt mjög gómsætur. Svo er uppskriftin svo einföld að fjögurra mánaða dóttir mín gæti næstum því gert þetta.

Í þessari uppskrift er sæt mjólk, eða sweetened condensed milk, en ef þið eigið í erfiðleikum með að finna hana þá mæli ég með Asian Supermarket í Skeifunni. Ég fer þangað reglulega til að byrgja mig upp af þessari einu mjólk sem ég elska og hún er alltaf til hjá þeim.

En nóg um mjólk. Dagurinn í dag er karamelludagur! Þeir eru bestu dagarnir!


Unaðslegar Snickers-karamellur
Hráefni
Leiðbeiningar
  1. Takið til kassalaga form, smyrjið það og setjið bökunarpappír í það sem nær aðeins upp á hliðunum.
  2. Setjið súkkulaði og mjólk í pott og bræðið saman yfir meðalhita.
  3. Takið af hellunni þegar allt er vel blandað saman og hellið helmingi af blöndunni í formið.
  4. Dreifið einum bolla af Snickers yfir blönduna og hellið síðan hinum helmingnum yfir. Dreifið loks hinum bollanum af Snickers yfir herlegheitin.
  5. Setjið í ísskáp yfir nótt eða að minnsta kosti átta klukkustundir.

Umsagnir

Umsagnir