Hvað er mikið Snickers í því? Það er einfalt svar við því: Mjöööög mikið!

Ég elska pönnukökur og get borðað þær í massavís en þessar pönnukökur eru á allt öðru leveli. Ef þú býður í brönsj ættirðu að bjóða upp á þessar í eftirrétt – gestirnir eiga eftir að elska þig að eilífu! Ég lofa!

Uppskriftin er rosalega einföld en ef þú átt uppskrift að amerískum pönnukökum sem þér finnst góð geturðu einfaldlega bætt Snickers-i út í hana. En það góða við þessa uppskrift er að pönnukökurnar eru ekta amerískar – rosalega þykkar og flöffí þannig að ég mæli eindregið með þessari uppskrift.

Njótið!


Snickers-pönnukökur með Snickers-sírópi
Hráefni
Pönnukökur
Síróp
Leiðbeiningar
Pönnukökur
  1. Blandið þurrefnum vel saman í skál og setjið til hliðar.
  2. Blandið eggi og sýrðum rjóma vel saman og blandið því saman við þurrefnin ásamt smjörinu.
  3. Blandið Snickers-bitunum varlega saman við.
  4. Hitið olíu á pönnu og steikið pönnukökurnar yfir meðalhita í nokkrar mínútur á hvorri hlið.
Síróp
  1. Setjið Snickers og rjóma í pott og hitið yfir meðalhita þar til allt er bráðið og blandað saman.
  2. Takið pottinn af hellunni og bætið sírópinu saman við.

Umsagnir

Umsagnir