Þessir klattar eru sko ekkert aprílgabb. Þetta er algjörlega skotheld uppskrift og ofureinföld þannig að hún getur alls ekki klikkað! Þvílík byrjun á poppmánuðinum mikla!

Ég notaði smá af Butterscotch-bitum í þennan unað en ef þið finnið þá ekki getið þið notað hvaða súkkulaði sem ykkur finnst gott. Reynið samt að finna Butterscotch-bita því þeir lyfta þessum klöttum upp í nýjar hæðir. Algjört lostæti sem maður getur hreinlega ekki hætt að borða! Nammið gerist ekki mikið betra en þetta.


Poppklattar sem þarf ekki að baka
Hráefni
Leiðbeiningar
  1. Byrjið á því að bræða smjör og hnetusmjör saman í stórum potti yfir lágum hita. Passið að hræra stanslaust í blöndunni svo hún brenni ekki við.
  2. Bætið sykurpúðunum út í og hrærið stanslaust þar til allt er vel blandað saman.
  3. Takið pottinn af hellunni og bætið poppi (passið að engar baunir fylgi með), Butterscotch-bitum, súkkulaðibitum og sjávarsalti saman við og hrærið vel. Hér eru hröð handtök nauðsynleg því blandan stífnar fljótt upp.
  4. Þrýstið blöndunni í ílangt form (ca 33 cm langt) sem þið eruð búin að klæða með bökunarpappír þannig að hann komi upp á hliðunum.
  5. Bræðið rjómasúkkulaðið og drissið ofan á blönduna. Leyfið þessu að jafna sig í um það bil klukkustund í ísskáp áður en þið hámið þetta í ykkur.

Umsagnir

Umsagnir