Jæja gott fólk. Hérna kemur uppskrift að köku sem er svo fáránlega einföld að jafnvel hundurinn minn gæti hlaðið í hana á slæmum degi.

Og ef þið farið eftir leiðbeiningunum verður hver sneið eins og að borða ský – með smjörklípu og sykri. Er það ekki annars það sem við erum öll að leita eftir?


Ofureinföld kaka með sítrónukremi
Hráefni
Krem
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið form sem þið viljið nota. Skellið smjöri og vatni í pott og leyfið að sjóða yfir miðlungshita.
  2. Hrærið hveiti og sykur saman og bætið því næst eggjum, sýrðum rjóma, möndludropum, vanilludropum, matarsóda og salti saman við.
  3. Blandið smjörblöndunni varlega saman við hveitiblönduna. Deigið á alls ekki að vera mjög þykkt. Bakið í 17 til 22 mínútur og kælið svo kökuna.
Krem
  1. Setijð mjólk, hveiti og sykur í pott og hrærið stanslaust í blöndunni yfir miðlungshita.
  2. Þegar blandan byrjar að sjóða leyfið henni þá að malla í 7 mínútur í viðbót en ekki gleyma að hræra stanslaust. Eftir 7 mínútur er blandan orðin þykk og flott.
  3. Takið blönduna af hellunni og bætið safa úr hálfri eða einni sítrónu saman við - allt eftir smekk. Hér er líka hægt að nota sítrónudropa. Kælið blönduna alveg í ísskáp.
  4. Þegar blandan er orðin köld er smjörinu hrært saman við í nokkrar mínútur eða þar til blandan er farin að líkjast þeyttum rjóma. Hér má bæta við gulum matarlit til að gera kremið aðeins gulara. Skreytið kökuna og skreytið að vild - jafnvel með sítrónuberki.

Umsagnir

Umsagnir