Gott skot er gulls ígildi. Of mörg góð skot eru hins vegar ávísun á virkilega vondan morgun eftir. Ég hef alltaf verið pínu svag fyrir einu og einu Jägermeister-skoti og því stóðst ég ekki mátið að prófa að baka Jägermeister-bollakökur.

Þessar eru helvíti öflugar og finnur maður vel fyrir Jägermeisternum í kreminu þó áfengið verði aldrei yfirþyrmandi. Ég mæli með þessum í partíið – þær eiga eftir að gera veislugestina glaða, meira að segja þá sem hata Jägermeister.


Jägermeister-bollakökur sem koma þér í gírinn
Hráefni
Krem
Leiðbeiningar
Kökur
  1. Byrjið á því að brúna smjörið. Eitthvað sem ég hef áður farið yfir hér á síðunni. Setjið smjör í pott og bræðið það yfir miðlungshita. Passið að hræra stanslaust í smjörinu. Leyfið smjörinu að sjóða en þá myndast loftbólur og blandan gefur frá sér hljóð sem minna helst á brothljóð. Það gerist því vatnið er að gufa upp úr smjörinu. Leyfið því að malla í pottinum þangað til brothljóðin minnka og loftbólur hætta að myndast. Þá kemur froða á yfirborð smjörsins og litur þess breytist úr gulum í ljósbrúnan og loks dökkbrúnan. Þetta tekur um átta til tíu mínútur en passið ykkur - smjörið getur brunnið við á nokkrum sekúndum. Um leið og smjörið er orðið dökkbrúnt og lyktin af því minnir á karamellu þá er það tilbúið. Takið pottinn af hellunni og hellið smjörinu í skál.
  2. Kælið smjörið aðeins við stofuhita og setjið það síðan inn í ísskáp þar til það er orðið að mjúkum massa.
  3. Hitið ofninn í 180°C og takið til 12 möffinsform. Hrærið smjör og sykur mjög vel saman.
  4. Bætið eggjunum saman við og hrærið vel.
  5. Blandið hveiti og lyftidufti saman og blandið því síðan saman við smjörblönduna.
  6. Bætið restinni af hráefnunum saman við og hrærið vel.
  7. Deilið deiginu á milli möffinsforma og bakið í 20 mínútur. Kælið kökurnar alveg.
Krem
  1. Þeytið kremið í 4-5 mínútur og bætið síðan flórsykrinum út í og hrærið.
  2. Blandið restinni af hráefnunum saman við og hrærið vel saman. Ef kremið er of þykkt bætið þið smá mjólk saman við.
  3. Skreytið kökurnar með kreminu og ég drissaði smá lakkrísskrauti yfir fyrir meira lakkrísbragð.

Umsagnir

Umsagnir