Á dauða mínum átti ég von á en ég hélt að það væri ekki séns í helvíti að ég gæti búið til sykurpúða heima hjá mér – úr nokkrum einföldum hráefnum!

En eldri dóttir mín eeeelskar sykurpúða nánast meira en lífið sjálft þannig að ég fór á netið og byrjaði að gúggla og sá að margir höfðu búið til sykurpúða heima hjá sér með góðum árangri. Þannig að ég ákvað að prófa – auðvitað með hana mér við hlið. Og viti menn, það tókst!

Þessi uppskrift er rosalega einföld en ég mæli með því að þið nælið ykkur í hitamæli svo þetta takist fullkomlega. Krakkarnir bara elska þetta!


Heimagerðir sykurpúðar
Hráefni
Leiðbeiningar
  1. Takið til form og smyrjið það vel. Dustið flórsykri ofan í það og dreifið honum vel um formið. Ég notaði 17 sentímetra form og fannst mínir sykurpúðar fullkomnir er varðar þykkt. Ef þið viljið þykkari notið þið minna form, ef þið viljið þynnri notið þið stærra form.
  2. Byrjið á því að leggja matarlímsblöðin í bleyti í köldu vatni (ekki 1/4 bollanum í uppskriftinni). Leyfið þessu að standa í nokkrar mínútur þar til límið er búið að "blómgast"
  3. Setjið vatn og sykur í pott og hitið yfir meðalhita þar til sykurinn hefur leysts upp. Gott er að hræra reglulega í blöndunni.
  4. Leyfið blöndunni að malla áfram á meðalhita þar til blandan hefur náð hitastiginu 115°C.
  5. Takið pottann af hitanum og blandið matarlíminu saman við.
  6. Bætið síðan salti og vanilludropum saman við. Auðvitað getið þið notað annað bragðefni og líka blandað saman matarlit ef þið viljið lita sykurpúðana.
  7. Hellið blöndunni í skál og hrærið á fullum styrk í nokkrar mínútur þar til blandan er orðin hvít, frekar þykk og minnir helst á marens áður en hann er bakaður.
  8. Hellið blöndunni strax í formið svo hún hlaupi ekki í kekki. Stráið flórsykri yfir og kælið í ísskáp í að minnsta kosti 4 klukkutíma.

Umsagnir

Umsagnir