Ef ég ætti að velja eitt orð til að lýsa þessum smákökum þá væri það: Stökkar.

Maður fær aldrei leið á að búa til hefðbundnar Rice Krispies-kökur. Þið vitið, einkennismerki góðs barnaafmælis. Kökur sem eru svo guðdómlega klístraðar að það er vel þess virði að hesthúsa þeim líkt og smákrakki dúndrar í sig barnamauki á góðum degi.

En Rice Krispies er svo gott í alls konar annan bakstur og þessar smákökur eru aðeins þær fyrstu af mörgu lostætinu sem á eftir að birtast hér á þessari síðu um ókomin ár. Ok, allavega ókomnar vikur og mánuði.

Þurfum við svo eitthvað að ræða Daim? Nei, ég held ekki!


Daim- og Rice Krispies-kökur
Hráefni
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofninn í 180°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötur. Blandið hveiti, salti, matarsóda og haframjöli vel saman í skál og setjið til hliðar.
  2. Blandið smjöri, sykri og púðursykri vel saman í annarri skál. Blandið því næst eggjum og vanilludropum saman við.
  3. Blandið þurrefnum varlega saman við smjörblönduna. Blandið Daim og Rice Krispies varlega saman við með sleif.
  4. Búið til kúlur úr deiginu og setjið á ofnplötur. Fletjið þær aðeins út. Skreytið kökurnar með smá Rice Krispies og bakið í sjö til níu mínútur.

Umsagnir

Umsagnir