Bíddu, bíddu, bíddu! Eplakaka inni í bollaköku? Hvernig virkar það eiginlega?!

Jú, krakkar mínir – það er náttúrulega bara sturlað! Og brjálæðislega einfalt – eða mér finnst það allavega! Og til að toppa þetta algjörlega setti ég dúnmjúkt karamellusmjörkrem ofan á. Þetta gerist ekki mikið betra!

Þessar ylja manni á köldum vetrarkvöldum og eru stórkostlegar í skammdeginu. Ég lofa!


Bollakökur fylltar með eplaköku
Hráefni
Bollakökur
Eplakökufylling
Smjörkrem
Leiðbeiningar
Bollakökur
  1. Hitið ofninn í 180°C og takið til 25-30 möffinsform.
  2. Þeytið smjöri og sykri vel saman í skál.
  3. Bætið mjólk, lyftidufti, kanil, eggjum og vanilludropum saman við og hrærið vel.
  4. Bætið hveitinu varlega saman við og blandið þar til allt er vel blandað saman en passið að hræra ekki of lengi.
  5. Deilið deiginu í möffinsform og bakið í 14-16 mínútur.
  6. Leyfið kökunum að kólna áður en fyllingin er sett í.
Eplakökufylling
  1. Bræðið smjör á pönnu yfir meðalhita.
  2. Setjið epli, sykur, púðursykur, sítrónusafa og kanil saman við og eldið þetta í um 10 mínútur, eða þar til eplin eru orðin mjúk. Hrærið reglulega í blöndunni.
  3. Setjið sterkju og vatni saman við og eldið þar til blandan er aðeins farin að þykkjast.
  4. Skellið í skál og kælið aðeins.
  5. Skerið litla holu í miðjuna á hverri bollaköku og setjið fyllingu ofan í.
Smjörkrem
  1. Þeytið smjörið í 1-2 mínútur og bætið síðan flórsykrinum út í og hrærið vel.
  2. Bætið karamellusósu og vanilludropum saman við og hrærið vel saman.
  3. Skreytið kökurnar með kreminu.

Umsagnir

Umsagnir