Jæja, núna hvílum við sítrónur og mangó og snúum okkur að ferska sumarávextinum ananas. Ef það kæmi einhvern tímann sumar á þessu verðubarna skeri gætum við setið undir berum himni, sleikt sólina og borðað safaríkan ananas í tonnavís. En út af því að það er vissara að halda sig heima er tilvalið að skella í þessar ananasbollakökur. Þær gætu ekki verið einfaldari og ekki skemmir fyrir að þær eru einstaklega lekkerar!


Ananasbollakökur
Hráefni
Kókoskrem
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofninn í 180°. Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti í skál og setjið til hliðar.
  2. Blandið saman smjöri, púðursykri og sykri í annarri skál. Bætið vanilludropunum út í og síðan eggjunum, einu í einu.
  3. Hrærið ananasinn, ásamt safanum af honum, varlega saman við með sleif. Deilið á milli möffinsforma og bakið í 15 til 20 mínútur. Leyfið kökunum að kólna áður en kremið er sett á.
Kókoskrem
  1. Blandið smjöri og flórsykri vel saman.
  2. Bætið því næst kókosmjólk og vanilludropum saman við og hrærið vel.
  3. Skreytið kökurnar og drissið jafnvel kókosmjöli og ananas yfir.

Umsagnir

Umsagnir